Áttundi vinavöllur okkar á komandi tímabili - Kirkjubólsvöllur

Áttundi vinavöllur okkar á komandi tímabili - Kirkjubólsvöllur

Áttunda vinavöllinn kynnum við nú fyrir félagsmönnum en sá var í hópi vinavalla í fyrsta sinn á síðasta tímabili – Kirkjubólsvöllur hjá Golfklúbbi Sandgerðis. Það er ánægjulegt að halda áfram þessu samstarfi klúbbana og er það von okkar að félagsmenn séu ánægðir með þennan áframhaldandi kost í hópi vinavalla. Golfklúbbur Sandgerðis var stofnaður 24. apríl 1986 og hefur verið í stöðugri uppbyggingu síðan. Völlurinn er strandarvöllur, staðsettur að Vallarhúsum, sem liggur mitt á milli Sandgerðis og Garðs. Hjá Golfklúbbi Sandgerðis er öll sú þjónusta sem kylfingar óska eftir þegar vinavöllur er heimsóttur - glæsilegt klúbbhús sem býður upp á fyrsta flokks veitingar og púttflöt þar sem hægt er að æfa stutta spilið.

Sömu reglur gilda á Kirkjubólsvelli eins og öðrum vinavöllum GR fyrir sumarið 2017. Félagsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur greiða kr. 2.000 í vallargjald í hvert sinn sem leikið er á Kirkjubólsvelli og skiptir þá ekki máli hvort leiknar séu 9 eða 18 holur. Áður en leikur hefst skulu félagar framvísa félagsskírteini sínu og greiða vallargjald í afgreiðslu. Samkomulagið gildir ekki ef félagsmenn leika með hópum, sem gert hafa sérstaka samninga um afslætti af vallargjöldum, eins og t.d fyrirtækjamót.

Útbúinn verður bókunarlinkur á síðu GR á www.golf.is undir rástímar – vellir.

Með þessari frétt hefur Golfklúbbur Reykjavíkur tilkynnt átta vinavelli fyrir komandi tímabil en þeir eru:

Svarfhólsvöllur Selfossi
Hamarsvöllur Borgarnesi
Vestmannaeyjavöllur Vestmannaeyjum
Hústóftarvöllur Grindavík
Hólmsvöllur Leirunni
Kálfatjarnavöllur Vatnsleysuströnd
Haukadalsvöllur í Haukadal
Kirkjubólsvöllur í Sandgerði


Góða helgi!

Ómar Örn Friðriksson,
framkvæmdarstjóri

Til baka í yfirlit