Bændaglíma GR 2017: Þema verður Villta vestrið – þátttakendur hvattir til að dusta rykið af kúrekahöttum, stígvélum og tóbaksklútum

Bændaglíma GR 2017: Þema verður Villta vestrið – þátttakendur hvattir til að dusta rykið af kúrekahöttum, stígvélum og tóbaksklútum

Bændaglíma Golfklúbbs Reykjavíkur 2017 verður haldin á Korpúlfsstaðavelli laugardaginn 23. september. Mótið er síðasta innanfélagsmót ársins svo um er að gera að skrá sig til leiks og loka golfsumrinu með stæl. Sá hluti vallar sem leikinn verður er Landið/ Áin og verða verðlaun veitt fyrir þrjú efstu sætin í liðakeppni. Nándarverðlaun verða veitt þeim leikmanni sem næstur er holu eftir upphafshögg á öllum par 3 holum vallarins.

Tekið verður á móti þátttakendum með fordrykk og tilheyrandi og keppendum verður boðið upp á skot, gos og sælgæti ásamt léttum veitingum í klúbbhúsi áður en leikur hefst. Að leik loknum verður blásið til kvöldverðar, matreiddum af Hödda „Campbell“ og hans góða starfsfólki.

Stjórnarmenn GR koma til með að framreiða veitingar ofan í keppendur á meðan á leik stendur. Veislustjóri verður okkar ástkæra stjórnarkona, Anna Björk „Parton“. Aðalnúmer kvöldsins verður hinn hárprúði Eyþór Ingi, söngvari og eftirherma með meiru. Að verðlaunaafhendingu lokinni verða óvæntar uppákomur og heyrst hefur að okkar vinsæli félagsmaður, Böddi Bergs „Wayne“, muni leiða línudans og að því loknu tekur dj PÓS við svipunni fram eftir nóttu.

Skráning í mótið hefst mánudaginn 18. september kl. 12:00 á www.golf.is. Hámarksfjöldi er 136 keppendur.

Við minnum á að aldurstakmark til þátttöku er 20 ár.

Mæting í mótið er kl.13:00 og verður ræst út af öllum teigum samtímis kl.14:00. Mikilvægt er að þeir sem ætla að spila saman í holli séu skráðir saman í rástíma.

Leikfyrirkomulag mótsins er Texas scramble höggleikur með forgjöf, fjórir leikmenn saman í liði. Forgjöf liðs er samanlögð vallarforgjöf leikmanna deilt með 10. Hámarksforgjöf sem gefin er til hvers leikmanns er 36. Til að gera leikinn ennþá skemmtilegri verður eftirfarandi regla í gildi: Skylt verður að velja að minnsta kosti tvö teighögg frá hverjum liðsmanni. Annað hinna völdu teighögga verður að vera á par 3 holu.
Bændur í ár verða þær Ásta Óskars „Twain“ og Guðrún Ýr „McEntire“.

Mótsgjald er 6.600 kr. á mann.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Kveðja,
Stjórn og starfsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur.

Til baka í yfirlit