Bændaglíma Golfklúbbs Reykjavíkur 2017 verður haldin á Grafarholtsvelli laugardaginn 30. september. Mótið er síðasta innanfélagsmót ársins svo um er að gera að skrá sig til leiks og loka golfsumrinu með stæl. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í liðakeppni. Nándarverðlaun verða veitt þeim leikmanni sem næstur er holu eftir upphafshögg á öllum par 3 holum vallarins.
Tekið verður á móti þátttakendum með borði hlaðið pinnamat ásamt kakó strå bollu í klúbbhúsi áður en leikur hefst. Að leik loknum verður blásið til kvöldverðar, matreiddum af Erni „James“ og hans góða starfsfólki.
Stjórnarmenn GR koma til með að framreiða veitingar ofan í keppendur á meðan á leik stendur. Veislustjóri verður okkar ástkæra stjórnarkona, Anna Björk „Parton“. Aðalnúmer kvöldsins verður verður svo kynnt þegar nær dregur. Að verðlaunaafhendingu lokinni verða óvæntar uppákomur og heyrst hefur að okkar vinsæli félagsmaður, Böddi Bergs „Wayne“, muni leiða línudans og að því loknu tekur dj PÓS við svipunni fram eftir nóttu.
Skráning í mótið hefst þriðjudaginn 26. september kl. 13:00 á www.golf.is. Hámarksfjöldi er 136 keppendur.
Við minnum á að aldurstakmark til þátttöku er 20 ár.
Mæting í mótið er kl.13:00 og verður ræst út af öllum teigum samtímis kl.14:00. Mikilvægt er að þeir sem ætla að spila saman í holli séu skráðir saman í rástíma.
Leikfyrirkomulag mótsins er Texas scramble höggleikur með forgjöf, fjórir leikmenn saman í liði. Forgjöf liðs er samanlögð vallarforgjöf leikmanna deilt með 10. Hámarksforgjöf sem gefin er til hvers leikmanns er 36. Til að gera leikinn ennþá skemmtilegri verður eftirfarandi regla í gildi: Skylt verður að velja að minnsta kosti tvö teighögg frá hverjum liðsmanni. Annað hinna völdu teighögga verður að vera á par 3 holu.
Bændur í ár verða þær Ásta Óskars „Twain“ og Helga Friðriks „McEntire“.
Mótsgjald er 6.600 kr. á mann og greiðist hjá veitingasala þegar mætt er.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Kveðja,
Stjórn og starfsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur.