Böðvar Bragi Pálsson hlaut Háttvísibikarinn 2017

Böðvar Bragi Pálsson hlaut Háttvísibikarinn 2017

Háttvísibikarinn er gjöf frá GSÍ í tilefni af 70 ára afmæli GR og er hann veittur ár hvert þeim kylfingi undir 18 ára aldri sem endurspeglar hvað mest þá eiginleika sem GR-ingar vilja sjá í afreksunglingum sínum. Sá sem hlýtur háttvísibikarinn þarf að hafa mikinn íþróttaanda, gefast aldrei upp, sýna miklar framfarir, vera sér og klúbbnum til mikils sóma bæði innan vallar sem utan og umfram allt vera fyrirmynd fyrir aðra í kringum sig.

Böðvar Bragi Pálsson hlýtur viðurkenninguna í ár. Böðvar er mikil fyrirmynd fyrir aðra iðkendur. Hann er mjög duglegur við æfingar og hefur sýnt jafnar og góðar framfarir seinustu árin.
Böðvar varð Íslandsmeistari í höggleik 14 ára og yngri í ár og sigraði á þremur mótum á Íslandsbankamótaröðinni. Böðvar varð Stigameistari í sínum flokki á Íslandsbankamótaröðinni. Í sumar setti Böðvar vallarmet á bláum teigum (sjórinn/áinn) er hann lék á 66 höggum á Icelandair Cargo mótaröðinni.

Er þetta í 14 skipti sem bikarinn er afhentur og þeir sem hafa áður fengið útnefninguna eru eftirfarandi kylfingar.

2004 Þórður Rafn Gissurarson
2005 Hanna Lilja Sigurðardóttir
2006 Guðni Fannar Carrico
2007 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
2008 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
2009 Andri Þór Björnsson
2010 Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2011 Sunna Víðisdóttir
2012 Ragnhildur Kristinsdóttir
2013 Saga Traustadóttir
2014 Ingvar Andri Magnússon
2015 Gerður Hrönn Ragnarsdóttir
2016 Dagbjartur Sigurbrandsson

Golfklúbbur Reykjavíkur óskar Böðvari Braga til hamingju með Háttvísibikarinn 2017.

Til baka í yfirlit