Byrjaðu núna! - golfnámskeið í apríl

Byrjaðu núna! - golfnámskeið í apríl

Vorið er komið og tíminn til að rífa sig í gang er núna! Er ekki tilvalið þá að skella sér á golfnámskeið í apríl og fara inní sumarið vel æfður og undirbúin. Eftirfarandi námskeið verða í boði hjá Arnari Snæ, PGA golfkennara, og Golfklúbbi Reykjavíkur í apríl:

Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari verður Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is
Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan.
Byrjendanámskeið – Besta leiðin til að byrja í golfi

Kvennanámskeið – Stórskemmtileg námskeið fyrir konur þar sem áhersla verður lögð á trékylfur
Sumar undirbúningur fyrir lengri komna – Fyrir þá sem ætla taka golfið sitt á næsta level í sumar
Drive, Birdie, Pútt – (Æfingarnámskeið) Allt sem þú þarft til að fá fleiri fugla

Byrjendanámskeið
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 19:00-20:00 á mánudögum og fimmtudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 17.apríl og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:

17.apr: Básar – Grip
20.apr: Básar – Grip/Staða
24.apr: Básar – Staða/Kraftur
27.apr: Básar – Trékylfur
1.maí: Básar – Upprifjun og fínpúss

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)


Kvennanámskeið
Frábært námskeið fyrir kvenkylfinga sem vilja ná betri tökum á golfleiknum þar sem sértaklega verður farið í teighögg og trékylfur/blendinga. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 20:30-21:30 á þriðjudögum og kl 11:00-12:00 á laugardögum. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 18.apríl og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:

18.apr: Básar – Sveifla
22.apr: Básar – Lengri teighögg
25.apr: Básar – Golfsveiflan fínpússuð
29.apr: Básar – Brautartré/blendingar
2. maí: Básar – Sveifla/teighögg

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Sumar undirbúningur fyrir lengri komna
Upplagt námskeið fyrir þá kylfinga sem ætla að fara með leikinn sinn á næsta plan í sumar. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 18:00-19:00 á mánudögum og miðvikudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 17.apríl og verður kennt á eftir eftirtöldum dagsetningum:

17.apr: Básar – Járnahögg
19.apr: Básar – Teighögg
24.apr: Básar – Brautartré
26.apr: Básar – Blendingar/trékylfur
1.maí: Básar – Pitch/Stutthögg

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Drive, Birdie, Pútt
Æfingarnámskeið fyrir þá sem vilja koma sér í fleiri fuglafæri og fá fleiri fugla, áhersla verður lögð á fleyghögg, teighögg og pútt . Námskeiðið er átta skipti (8x 60 mín) frá klukkan 18:00-19:00 á miðvikudögum og laugardögum klukkan 12:00-13:00. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 26.apríl og verður kennt á eftir eftirtöldum dagsetningum:

26.apr: Básar – Vanaferli/Teighögg
29.apr: Básar – Teighögg/Lengd
3.maí: Básar – Pitch/Grunnur
6.maí: Básar – Teighögg/Stefna
10.maí: Básar – Pútt/Lengdarstjórnun
13.maí: Básar – Pitch/Lengdarstjórnun
17.maí: Básar – Pútt/Stefna
20.maí: Básar – Pitch/Stefna
Verð 20.000 kr. (Boltar ekki innifaldir) *Hámarksfjöldi 8 manns

Til baka í yfirlit