Þá er púttmótaröðin hafin enn eitt árið og verður ekki annað sagt en hún fari vel af stað. Þátttakan er svipuð og undanfarin ár eða um 200 manns.
Eins og áður hefur komið fram verða veitt verðlaun fyrir besta skor hverrar umferðar og er Sigurjón Árni Ólafsson fyrsti verðlaunahafinn á mótaröðinni 2017, hann fær verðlaunin afhent næsta fimmtudag. Sigurjón lék á 54 höggum – sem er 18 undir, ekki slæmt skor það.
Úrslitin, sem fylgja alltaf þessum pistlum mínum, eru í Excel-skjali og til að opna það verður að smella á „Enable Macros“ og þá á skjalið að opnast.
Vonandi hefur allt komist rétt til skila í öllum látunum, sem fylgir alltaf fyrsta kvöldinu, en ef ekki þá endilega komið með leiðréttingu næsta fimmtudag eða sendið mér póst
Týndur pútter
Sá undarlegi atburður átti sér stað að Ping Anzer með hvítu, bláu og gráu gripi, hvarf sporlaust, svo ekki sé meira sagt. Sá sem tók hann er vinsamlega beðinn um að láta umsjónarmann vita sem allra fyrst af mistökunum.
Skorkortin
En þá er það alvaran. Það þarf að vanda sig er fylla á út skorkortin. Flest skorkortin eru til fyrirmyndar en svo koma nokkur sem ekki eru alveg að gera sig.
Regla nr. 1 að merkja nr. liðs á skorkortið og nöfn leikmanna eða skammstöfun skýrum stöfum. En þetta lögum við allt í næstu umferð.
Vonandi hefur flest komist rétt til skila í öllum látunum, sem fylgir alltaf fyrsta kvöldinu, en ef ekki þá endilega komið með leiðréttingu næsta fimmtudag eða sendið mér póst.
Gamla tuggan
Svo gerum við það núna að fastri reglu að þegar skorkort er sótt að láta umsjónar-mann vita hver telur ekki það kvöldið og hringinn góða utan um nafnið.
Mótsgjaldið
Munið að taka 5 þúsund kallinn með þeir sem eiga eftir að greiða.
Hér að neðan er staða liða og einstaklinga eftir 1. umferð.
Annars bara kátur.
Bestu kveðjur,
Halldór B. Kristjánsson
898 3795
leturval@litrof.is