Golfklúbbur Reykjavíkur verður gestgjafi Íslandsmóts 2019

Golfklúbbur Reykjavíkur verður gestgjafi Íslandsmóts 2019

Íslandsmótið í golfi árið 2019 mun vera haldið hjá Golfklúbbi Reykjavíkur, mótanefnd GSÍ samþykkti tillögu þessa og var hún staðfest á stjórnarfundi GSÍ þann 22. ágúst síðastliðinn. Þá var einnig samþykkt að Íslandsmótið 2020 yrði haldið hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Eins og áður hefur komið fram mun Íslandsmótið 2018 fara fram hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja.

Íslandsmótið í golfi fór síðasta fram hjá GR árið 2013 en Íslandsmótið hefur aldrei áður farið fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Fyrr á þessu ári óskaði mótanefnd GSÍ eftir umsóknum um Íslandsmótið í höggleik fyrir árin 2019 og 2020. Umsóknir bárust frá nokkrum klúbbum og var greinilegs mikill metnaður meðal klúbba að fá að halda þetta stærsta mót sem haldið er á Íslandi á hverju ári.

Klúbbnum er það bæði heiður og ánægja að vera valinn til að halda Íslandsmótið í höggleik árið 2019.

Til baka í yfirlit