Golfnámskeið í júní - eitthvað fyrir alla

Golfnámskeið í júní - eitthvað fyrir alla

Nú er sumarið komið á fullt. Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn er ekki tilvalið að skella sér á golfnámskeið í júní og læra spila gott golf! Eftirfarandi námskeið verða í boði hjá Arnari Snæ í júní:

Algjör byrjandi – Besta leiðin til að byrja í golf
Framhaldsnámskeið – Taktu næsta skrefið
Kvennanámskeið – Vinsælustu námskeiðin í dag
Almennt golfnámskeið fyrir alla – Eitthvað fyrir alla
NÝTT ÆFINGARNÁMSKEIÐ – Æfðu eins og atvinnumaður
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is

Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan:

Algjör byrjandi
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Námskeiðið er kennt á laugardögum klukkan 10:00-11:00 og mánudögum og miðvikudögum kl 19:00-20:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið laugardaginn 3.júní í Básum, Grafarholti

3.júní: – Grunnatriði/Sveifla
5.júní: – Kraftur
7.júní: – Grunnatriði/Pútt/Vipp
10.júní – Golfsveiflan
12.júní: – Pútt/Glompa
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)


Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur
Er ekki kominn tími til að taka næsta skrefið og taka skrefið yfir í að vera alvöru golfari? Þá er þetta námskeið fyrir þig. Námskeiðið er kennt á laugardögum kl 11:00-12:00 og þriðjudögum og fimmtudögum kl 17:00-18:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið þriðjudaginn 6.júní í Básum, Grafarholti

6.júní: – Golfsveiflan
8.júní: – Golfsveiflan
10.júní: – Pútt/Vipp
13.júní: – Golfsveiflan
15.júní: – Pútt/Glompa

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Kvennanámskeið
Frábært námskeið fyrir kvenkylfinga sem vilja ná betri tökum á golfleiknum þar sem áhersla verður lögð á stuttaspil og glompu. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 20:00-21:00 á þriðjudögum og fimmtudögum. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 6.júní og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:

6.júní: – Golfsveiflan
8.júní: – Teighögg
13.júní: – Pútt/Vipp
15.júní: – Golfsveiflan
20.júní: – Pútt/Glompa

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Almennt golfnámskeið fyrir alla
Tilvalið námskeið fyrir alla kylfinga sem eru kominn með smá grunn í leiknum en vilja læra meira. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 21:00-22:00 á þriðjudögum og fimmtudögum. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 6.júní og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:

6.júní: – Golfsveiflan
8.júní: – Golfsveiflan
13.júní: – Stuttaspil
15.júní: – Teighögg
20.júní: – Pútt/Glompa

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

STUTTASPILS ÆFINGARNÁMSKEIÐ
Æfðu eins og atvinnumaður. Námskeiðið er fjögur skipti (4x 60 mín) frá klukkan 09:00-10:00 á laugardögum. Námskeiðið hefst laugardaginn 6.júní og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:

3.júní: – Pútt
10.júní: – Vipp
17.júní: – Pitch
24.júní: – Glompa

Verð 8.000 kr.

Spilum gott golf í sumar!

Til baka í yfirlit