Nú fer óðum að styttast í vormánuðina og því fylgir undirbúningstímabil golfarans, þá er tilvalið að fínpússa sveifluna og koma vel æfð/ur til leiks. Golfklúbbur Reykjavíkur býður upp á fjölbreytt námskeiðahald og eru námskeiðin opinn öllum. Eftirfarandi námskeið verða í boði hjá Arnari Snæ, PGA golfkennara, í mars.
- Byrjendanámskeið
- Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur
- Æfingarnámskeið fyrir lengri komna
Innifalið í hverju námskeiði eru 10 kennslutímar.
Hvert námskeið er kennt yfir 4 vikur, 2 x í viku og 2 x laugardaga
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar.
Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is
Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan.
Byrjendanámskeið
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Farið verður vel yfir alla grunnþætti í golfinu.
Námskeiðið er kennt á þriðjudögum og fimmtudögum kl 17:00-18:00 og annan hvern laugardag kl 10:00-11:00
Námskeiðið hefst 6.mars í Básum, Grafarholti
Verð 25.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur
Skemmtilegt námskeið fyrir kylfinga sem eru komnir aðeins áfram í sportinu og vilja taka næsta skrefið í sínum leik. Námskeiðið er kennt á þriðjudögum og fimmtudögum frá 18:00 - 19:00 og annan hvern laugardag kl 11:00-12:00
Námskeiðið hefst 6.mars í Básum, Grafarholt
Verð 25.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Æfingarnámskeið fyrir lengri komna
Frábært námskeið fyrir þá sem eru komnir með góða þekkingu á sínum leik og vilja fá smá yfirhalningu og koma vel æfð í sumarið. Námskeiðið er kennt á þriðjudögum og fimmtudögum frá 19:00 - 20:00 og annan hvern laugardag kl 9:00-10:00
Námskeiðið hefst 6.mars í Básum, Grafarholt
Verð 25.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)