Golfnámskeið í sept/okt

Golfnámskeið í sept/okt

Ný námskeið fyrir alla í september/október, hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn er tilvalið að skella sér á golfnámskeið í október og læra spila gott golf!. Eftirfarandi námskeið verða í boði hjá Arnari Snæ PGA kennara í október.

Byrjendanámskeið – Besta leiðin til að byrja í golf
Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur – Næsta skrefið fyrir byrjendur
Haustnámskeið fyrir alla – Almennt námskeið

Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is

Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan.

Byrjendanámskeið
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Námskeiðið er kennt á virkum dögum frá klukkan 17:30-18:30 og á laugardögum klukkan 10:00-11:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið mánudaginn 25.sept í Básum, Grafarholti

25.sept: – Grunnatriði/Sveifla
27.sept: – Kraftur
30.sept: – Grunnatriði/Pútt/Vipp
2.okt: – Golfsveiflan
4.okt: – Pútt/Glompa

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur
Gott námskeið fyrir þá sem vilja ná betri tökum á golfleiknum og fá meira öryggi og þekkinguna á leiknum Námskeiðið er kennt á virkum dögum frá klukkan 18:30-19:30 og á laugardögum klukkan 11:00-12:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið námskeiðið mánudaginn 25.sept í Básum, Grafarholti

25.sept: – Sveifla/Boltaflug
27.sept: – Power/Lengd
30.sept: – Pútt/Vipp æfing
2.okt: – Teighögg
4.okt: – Pútt/Glompa

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Haustnámskeið
Skemmtilegt námskeið fyrir kylfinga sem eru komnir aðeins áfram í sportinu og vilja smá yfirhalningu þar sem áhersla verður lögð á að bæta slátt teighögg og pútt. Námskeiðið er kennt á virkum dögum frá klukkan 19:30-20:30 og á laugardögum klukkan 12:00-13:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið þriðjudaginn 25.sept í Básum, Grafarholti

25.sept: – Sveifla/Uppstilling/Kylfuval
27.sept: – Kraftur
30.sept: – Pútt/Vipp æfingar
2.okt: – Lengri högg/Teighögg
4.okt: – Pútt/Glompa

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Til baka í yfirlit