Ný námskeið í Jóga fyrir golfara hefjast þann 14. mars fyrir meðlimi GR en síðustu námskeið voru fljót að fyllast. Námskeiðin eru kennd í nýjasta Worldclass salnum við Breiðholtslaug og fara fram þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18:30 og kl. 20:00. Hámarksfjöldi er í þessa tíma og því gott að bóka sig eða sinn hóp sem fyrst svo hægt sé að sjá hvort þurfi að bæta við fleiri tímum. Þetta eru fjögurra vikna námskeið sem kosta 6.100 kr fyrir meðlimi Worldclass og 13.000 fyrir þá sem ekki eru í Worldclass, en þeir fá þá aðgang af öllum stöðvum Worldclass allan mánuðin. Frábær aðstaða til að fara í sund og potta á eftir.
Þessir tímar henta öllum sem stunda golf, byrjendum sem og lengra komnum.
Tímarnir eru samsettir af æfingum sérsniðnum fyrir golfara. Með jóganum minnkum við líkur á meiðslum og komumst í betra form fyrir sumarið með auknum styrk, sveigjanleika, jafnvægi og einbeitingu.
ÁVINNINGUR MEÐ JÓGANU:
Halda betur út heilan golfhring
Auka vöðvajafnvægi sem skilar sér í betri sveiflu
Auka líkamsvitund og hreyfifærni líkamans
Bæta líkamlega þætti sem auka líkurnar á betri frammistöðu á golfvellinum.
Katherine Roberts, Arizona USA setti saman þetta sérhæfða æfingarkerfi sem hún kallar “ YFG” yoga for golfers. Hún var í samstarfi við fræga PGA kennara, atvinnukylfinga og aðra sem koma að þjálfun golfara, td Hank Haney (fyrrum þjálfara Tiger Woods og Mark O´Meara).
Skráning og fyrirspurnir á golfjoga@gmail.com
http://www.facebook.com/golfjoga.is
Kveðja,
Birgitta Guðmundsdóttir