Kynning á starfi klúbbsins fyrir nýja meðlimi GR

Kynning á starfi klúbbsins fyrir nýja meðlimi GR

Þriðjudaginn 25. apríl kl. 20:00 verður haldin kynning á störfum klúbbsins fyrir nýja meðlimi GR. Með þessum hætti viljum við bjóða nýja félaga velkomna og gefa þeim tækifæri á að kynnast því starfi sem hér fer fram og spyrja spurninga að því loknu, ef einhverjar eru.

Kaffi og léttar veitingar verða í boði fyrir fundargesti.

Við hvetjum alla nýja meðlimi til að mæta og kynna sér þá þjónustu sem klúbburinn hefur upp á að bjóða.

Golfklúbbur Reykjavíkur.

Til baka í yfirlit