La Sella - tilboðsferð í sólina í samstarfi við Heimsferðir

La Sella - tilboðsferð í sólina í samstarfi við Heimsferðir

Golfklúbbur Reykjavíkur í samstarfi við Heimsferðir býður félagsmönnum upp á tilboðsferð í sólina í vor, dagana 28. apríl – 5. maí. Áfangastaðurinn er La Sella golfsvæðið á Spáni sem hannað er að tvöfalda US Masters meistaranum Jose María Olazabal. Fararstjórar ferðarinnar verða Einar Gunnarsson og hin eina sanna Ragnhildur Sigurðardóttir.

Verð í ferðina er kr. 194.900 á mann, miðað við gistingu í tvíbýli – innifalið er:

Flug, flugvallaskattar
Ferðir til og frá flugvelli
Gisting á 5 stjörnu Marriott hóteli með hálfu fæði + drykkur með kvöldverði
Komudrykkur á fyrsta kvöldinu og Galadinner á lokakvöldi 4. maí
Ótakmarkað golf í 6 daga með golfbíl – hægt að spila á komudegi með golfkerru eða greiða 20 evrur fyrir golfbíl
Golfmót í boði Heimsferða – hægt að vinna gjafabréf að verðmæti kr. 250.000

Fararstjórn í höndum fagfólks: Einar Gunnarsson og Ragnhildur Sigurðardóttir

Eins og fyrr segir er golfsvæðið hannað af Olazabal og er um að ræða 3 ólíkar 9 holu lykkur eða samtals 27 holur. Lykkjurnar 3 eru fallega staðsettar í glæsilegu umhverfi þjóðgarðsins og skiptast í gula, rauða og græna völlinn. Vellirnir eru mjög ólíkir og fjölbreyttir. Rauða völlinn má skilgreina sem klassískan skógarvöll á meðan guli völlurinn líkist mest „parklandvelli “, græni völlurinn er svo mjög opinn og líkist um margt því að spila sjávarvöll. La Sella býður einnig upp á mjög gott æfingasvæði til að æfa alla þætti íþróttarinnar.

Upplýsingar um hótel:
Hotel Marriott La Sella Golf Resort er í El Montgo þjóðgarðinum. Náttúrufegurð þjóðgarðsins er með eindæmum og mikil gróðursæld samanborið við önnur svæði í suðausturhluta Spánar. Hótelið býður upp á allt sem til þarf til að fullkomna golfferðina. Auk rúmgóðra herbergja er góð heilsulind á staðnum, líkamsrækt, 2 veitingastaðir, móttöku- og sundlaugarbar. Aðeins eru rúmlega 100 metrar frá hótelinu og í klúbbhúsið. Næsti bær við hótelið er Denía, en þangað er sirka 7 mínútna akstur. Ennþá nær er ágætisverslunarmiðstöð. Hótelið, staðsetning þess og andrúmsloftið býður af sér góðan þokka sem hjálpar til við að fullkomna sveifluna í golffríinu þinu.

Hægt er að bóka í ferðina hjá Ragnhildi á netfangið apari@apari.is 

Til baka í yfirlit