Mjólkursamsalan - mótaröð eldri kylfinga, fjórða umferð

Mjólkursamsalan - mótaröð eldri kylfinga, fjórða umferð
Fjórða umferð í Mjólkursamsalan - mótaröð eldri kylfinga fer fram í Grafarholtinu þriðjudaginn 1. ágúst. 

Þrír bestu hringirnir telja til verðlauna á mótaröðinni, þannig að í höggleiknum telja 3 bestu skorin í höggum talið og í punktakeppni telja samanlagt þrír punktahæstu hringirnir. Keppendur þurfa því að taka þátt og skila inn skori í að minnsta kosti þremur mótum af fjórum til þess að vinna til verðlauna.  Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í punktakeppni og höggleik í báðum flokkum karla og kvenna.  Skipting í flokka kemur fram hér að neðan. Sami keppandinn getur ekki unnið til verðlauna fyrir bæði punktakeppni og höggleik.

Verði keppendur í verðlaunasætum jafnir að höggum eða punktum ræðst röð af fjölda mótasigra á mótaröðinni. Sé það jafnt ræður besta skor, síðan næst besta og svo koll af kolli þar til röð keppenda í verðlaunasæti liggur fyrir.

Þrír fyrstu hringirnir í höggleiknum á mótaröðinni verða hafðir til hliðsjónar við val kvennasveita GR fyrir sveitakeppnina og er vísað til reglugerðar um sveitakeppni til nánari skýringa.
Þátttakendur verða að bóka sína rástíma sjálfir og það má vera hvenær sem er á viðkomandi leikdegi. Mótsgjald er 1.500 kr. sem greiða þarf í golfbúðinni áður en leikur hefst á þeim velli sem spilað er á hverju sinni. Að leik loknum skila menn svo inn skorkorti með kennitölu og undirskrift frá meðspilara í þar til gerðan kassa sem staðsettur verður í golfbúðinni.
Tilboð verður í veitingasölu fyrir keppendur þá daga sem mótin verða haldin bæði á Korpúlfsstöðum og í Grafarholti.

Mótsstjóri mótaraðarinnar er Atli Þór Þorvaldsson. 

Nefnd eldri kylfinga
Til baka í yfirlit