Ný 4 vikna golfnámskeið í febrúar

Ný 4 vikna golfnámskeið í febrúar

Nú fer óðum að styttast í vorið og því fylgir undirbúningstímabil golfarans þá er tilvalið að fínpússa sveifluna og koma vel æfð/ur til leiks. Golfklúbbur Reykjavíkur býður upp á fjölbreytt námskeiðahald í vetur og eru námskeiðin opinn öllum. Eftirfarandi námskeið verða í boði hjá Arnari Snæ PGA kennara í febrúar.

  • Byrjendanámskeið
  • Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur
  • Æfingarnámskeið fyrir lengri komna

Innifalið í hverju námskeiði eru 10 kennslutímar.

Hvert námskeið er kennt yfir 4 vikur, 2 x í viku og 2 x laugardaga

Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is

Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan.

Byrjendanámskeið
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Farið verður vel yfir alla grunnþætti í golfinu.

Námskeiðið er kennt á þriðjudögum og fimmtudögum kl 17:00-18:00 og annan hvern laugardag kl 10:00-11:00

Námskeiðið hefst 13.febrúar í Básum, Grafarholti

Verð 25.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur
Skemmtilegt námskeið fyrir kylfinga sem eru komnir aðeins áfram í sportinu og vilja taka næsta skrefið í sínum leik. Námskeiðið er kennt á þriðjudögum og fimmtudögum frá 18:00 - 19:00 og annan hvern laugardag kl 11:00-12:00

Námskeiðið hefst 13.febrúar í Básum, Grafarholt

Verð 25.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Æfingarnámskeið fyrir lengri komna
Frábært námskeið fyrir þá sem eru komnir með góða þekkingu á sínum leik og vilja fá smá yfirhalningu og koma vel æfð í sumarið. Námskeiðið er kennt á þriðjudögum og fimmtudögum frá 19:00 - 20:00 og annan hvern laugardag kl 9:00-10:00

Námskeiðið hefst 13.febrúar í Básum, Grafarholt

Verð 25.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Til baka í yfirlit