Ný námskeið í júní

Ný námskeið í júní

Frábær námskeið fyrir alla, hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn er ekki tilvalið að skella sér á golfnámskeið í lok júní og læra spila gott golf!. Eftirfarandi námskeið verða í boði hjá Arnari Snæ í júní:

Algjör byrjandi – Besta leiðin til að byrja í golfi
Algjör byrjandi 2 – Besta leiðin til að byrja í golfi
Framhaldsnámskeið – Næsta skrefið fyrir byrjendur
Kvennanámskeið – Vinsælustu námskeiðin í dag

Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is

Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan:

Algjör byrjandi 1
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Námskeiðið er kennt á laugardögum klukkan 10:00-11:00 og á mánudögum og miðvikudögum kl 19:00-20:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið miðvikudaginn 21.júní í Básum, Grafarholti

21.júní – Grunnatriði/Sveifla
24.júní – Kraftur
26.júní – Grunnatriði/Pútt/Vipp
28.júní – Golfsveiflan
1.júlí – Pútt/Glompa

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)


Algjör byrjandi 2
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Námskeiðið er kennt á laugardögum klukkan 11:00-12:00 og á þriðjudögum og fimmtudögum kl 18:00-19:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið fimmtudaginn 22.júní í Básum, Grafarholti
22.júní – Grunnatriði/Sveifla
24.júní – Kraftur
27.júní – Grunnatriði/Pútt/Vipp
29.júní – Golfsveiflan
1.júlí – Pútt/Glompa

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur
Er ekki kominn tími til að taka næsta skrefið og taka skrefið yfir í að vera alvöru golfari? Þá er þetta námskeið fyrir þig. Námskeiðið er kennt á laugardögum kl 12:00-13:00 og á þriðjudögum og fimmtudögum kl 17:00-18:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið fimmtudaginn 22.júní í Básum, Grafarholti

22.júní – Sveiflan
24.júní – Driver/Teighögg
27.júní – Grunnatriði/Pútt/Vipp
29.júní – Stefnustjórnun sláttur
1.júlí – Pútt/Glompa

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Kvennanámskeið
Skemmtilegt námskeið sérhannað fyrir kvenkylfinga sem vilja ná betri tökum á golfleiknum þar sem áhersla verður lögð á að bæta slátt og pútt. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 18:00-19:00 á mánudögum og miðvikudögum og á laugardögum kl 13:00-14:00. Námskeiðið hefst mánudaginn 26.júní og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:

26.júní – Golfsveiflan
28.júní – Teighögg
1.júlí – Pútt/Vipp
3.júlí – Golfsveiflan
5.júlí – Pútt/Glompa
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is

Til baka í yfirlit