Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er meðal keppenda á Bank of Hope Founders mótinu á LPGA mótaröðinni sem hefst í Phoenix, Arizona á morgun, fimmtudag. Ólafía Þórunn tók þátt í sama móti í fyrra en þá komst hún ekki í gegnum niðurskurðinn.
Ólafía hefur leikið á tveimur mótum á núverandi tímabili og komst hún í gegnum niðurskurð á öðru þeirra, Pure Silk Bahamas mótinu, sem leikið var í janúar.
Keppendalisti á móti helgarinnar er sterkur og ber þar að nefna Lydia Ko, Korda systurnar, Cheyenne Woods, Michelle Wie, Sung Hyun Park, Inbee Park og Anna Nordqvist verða allar með.
Mótið hefst á hefst á fimmtudag og eru leiknir fjórir hringir. Niðurskurður verður eftir tvo hringi og komast þá 70 efstu kylfingarnir áfram.
Við óskum Ólafíu alls hins besta á móti helgarinnar!
Golfklúbbur Reykjavíkur