OPNA EIMSKIP 2017

OPNA EIMSKIP 2017

Opna Eimskip verður haldið á Korpu sunnudaginn 13. ágúst 2017. Ræst er út frá kl. 8:00. Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni og höggleikur. Hámarksforgjöf er gefin 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir 3 efstu sætin í höggleik og 5 efstu sætin í punktakeppni. Nándarverðlaun eru veitt þeim sem er næstur holu í upphafshöggi á öllum par 3 brautum vallarins. Sá hluti vallar sem leikinn verður er Sjórinn/Áin.

Eimskip býður öllum keppendum upp á súpu, brauð og drykk í veitingasölu Korpunnar fyrir leik.

Skráning í mótið hefst miðvikudaginn 9. ágúst kl.12:00 á www.golf.is. Mótsgjald er kr.5.600 kr. og greiðist við skráningu. Innifalið í mótsgjaldi er teiggjöf frá Eimskip og 50 boltar í Básum fyrir þátttakendur fyrir mót.

Verðlaun:

Höggleikur:
1. sæti: Sigling fyrir fjóra með Sæferðum um Breiðafjörðinn
2. sæti: Sigling fyrir tvo með Sæferðum um Breiðafjörðinn
3. sæti: Ferð fyrir fjóra í golf á Akranesi, siglt með Akraborginni

Punktakeppni:
1. sæti: Sigling fyrir fjóra með Sæferðum um Breiðafjörðinn
2. sæti: Sigling fyrir tvo með Sæferðum um Breiðafjörðinn
3. sæti: Ferð fyrir fjóra í golf á Akranesi, siglt með Akraborginni
4. sæti: Ferð fyrir tvo í golf á Akranesi, siglt með Akraborginni
5. sæti: Ferð fyrir tvo í golf á Akranesi, siglt með Akraborginni

Nándarverðlaun:
3. hola: Golfhringur fyrir 2 á völlum GR og 1.000 boltar í Bása
6. hola: Golfhringur fyrir 2 á völlum GR og 1.000 boltar í Bása
9. hola: Golfhringur fyrir 2 á völlum GR og 1.000 boltar í Bása
13. hola: Golfhringur fyrir 2 á völlum GR og 1.000 boltar í Bása
17. hola: Golfhringur fyrir 2 á völlum GR og 1.000 boltar í Bása

Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur - Skráning og mætingar í mót
9.1 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag. Mótsstjóri er Dóra Eyland og hefur netfangið dora@grgolf.is

Golfklúbbur Reykjavíkur í samvinnu við Eimskip

Til baka í yfirlit