Opna Örninn Golfverslun verður haldið á Korpúlfsstaðavelli laugardaginn 20. maí. Ræst verður út frá kl.8:00. Leikfyrirkomulag mótsins er höggleikur og punktakeppni. Hámarksforgjöf er gefin 24 hjá körlum og 28 hjá konum.
Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni í karla- og kvennaflokki. Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta skor. Nándarverðlaun eru veitt þeim sem er næstur holu í upphafshöggi á öllum par 3 holum vallarins, bæði í karla- og kvennaflokki.
Skráning hefst þriðjudaginn 16. maí kl.10:00 á www.golf.is. Greiða þarf við skráningu og er mótsgjald 5.600 kr.
Verðlaun:
Karlaflokkur - punktakeppni:
1. sæti. Taylor Made M2 driver
2. sæti. Galvin Green Regnjakki
3. sæti. Galvin Green Windstopper
Kvennaflokkur - punktakeppni:
1. sæti. Taylor Made M2 driver
2. sæti. Galvin Green Regnjakki
3. sæti. Galvin Green Windstopper
Besta skor: Taylor Made M2 driver
Nándarverðlaun:
3.braut - Insula peysa
6.braut - Cleveland Wedge
9. braut - 1 Dz Srixon Ultisoft boltar + Galvin Green lúffur
13.braut - Cleveland Classic Kerrupoki
17.braut - Skintight frá Galvin Green
Teiggjöf: Allir þátttakendur fá teiggjöf frá Örninn Golfverslun áður en leikur hefst.
Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur - Skráning og mætingar í mót.
9.1 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag. Mótsstjóri er Dóra Eyland og hefur Dóra netfangið dora@grgolf.is
Golfklúbbur Reykjavíkur í samvinnu við Opna Örninn Golfverslun