Opnunarmót Korpu – skráning hefst 8. maí kl. 12:00

Opnunarmót Korpu – skráning hefst 8. maí kl. 12:00

Ágætu félagsmenn, þá er komið að formlegri opnun Korpúlfsstaðarvallar sem hefst með Opnunarmóti Korpu. Mótið, sem er innanfélagsmót, verður haldið laugardaginn 12. maí, leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni. Hæst er gefin forgjöf 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Leikið er í tveimur flokkum 0-14 og 14,1 og hærra.

Skráning í mótið hefst þriðjudaginn 8. maí kl.12:00, á www.golf.is, mótsgjald er kr. 3.300 og þarf að greiða við skráningu.

Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki. Nándarverðlaun verða veitt á öllum par 3 holum vallarins og að auki verða veitt verðlaun fyrir besta skor.

Tilkynning um umferð golfbíla á vellinum verður gefin út miðvikudaginn 9. maí.
Á þessum tíma eru golfvellir oft viðkæmir fyrir bílaumferð, spáð er mikilli úrkomu næstu daga og því verður tekin ákvörðun seinni part miðvikudags hvort umferð golfbíla verði leyfð á Korpu fyrst um sinn. Tilkynning verður sett á vefsíðu klúbbsins.


Verðlaun í Opnunarmóti Korpu:

Forgjöf 0 – 14
1. sæti: GR merkt Footjoy peysa og bolur
2.sæti: GR merkt Footjoy peysa
3.sæti: GR merktur Footjoy bolur

Forgjöf 14,1 - og hærra
1.sæti: GR merkt Footjoy peysa og bolur
2.sæti: GR merkt Footjoy peysa
3.sæti: GR merktur Footjoy bolur

Besta skor:
1. sæti: GR merkt Footjoy peysa og bolur

Nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins: Gullkort á æfingasvæði Bása.

Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur - Skráning og mætingar í mót
9.1 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag. Mótsstjóri er Dóra Eyland, dora@grgolf.is

Hlökkum til að sjá ykkur!

Golfklúbbur Reykjavíkur

Til baka í yfirlit