Nú kynnum við fyrir ykkur vinavöll númer sjö í röðinni fyrir golftímabilið 2017, Haukadalsvöllur hjá Golfklúbbnum Geysi. Þetta er annað árið í röð sem klúbbarnir fara í samstarf og þykir okkur afar ánægjulegt að tilkynna framhald á því. Haukadalsvöllur opnaði í júlí 2006 og er staðsettur nærri hverasvæðinu í Haukadal, stundum má sjá Strokk og Geysir blása úr sér á meðan spili stendur. Haukadalsvöllur er 9 holur og ber hver hola nafn einhvers af þeim hverum sem finnast á hverasvæðinu. Um er að ræða mjög skemmtilegan, krefjandi og fallegan golfvöll sem liggur í mjög fallegu náttúruumhverfi. Þegar staðið er á fyrsta teig kemur fegurðin strax í ljós, við hönnum vallarins var tekið tillit til náttúrunnar og umhverfisins og er lega vallarins líkust umhverfinu eins og það var áður en framkvæmdir hófust.
Félagsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur greiða kr. 2.500 í vallargjald í hvert sinn er þeir leika Haukadalsvöll og skiptir þá ekki máli hvort leiknar séu 9 eða 18 holur. Áður en leikur hefst skulu félagar framvísa félagsskírteini sínu og greiða vallargjald í afgreiðslu. Samkomulagið gildir ekki ef félagsmenn leika með hópum, sem gert hafa sérstaka samninga um afslætti af vallargjöldum, eins og t.d fyrirtækjamót.
Útbúinn verður bókunarlinkur á síðu GR á www.golf.is undir rástímar – vellir.
Heimasíðu Haukadalsvallar er að finna hér
Með þessari frétt hefur Golfklúbbur Reykjavíkur tilkynnt sjö vinavelli fyrir komandi sumar og eru þeir eftirtaldir:
Svarfhólsvöllur Selfossi
Hamarsvöllur Borgarnesi
Vestmannaeyjavöllur Vestmannaeyjum
Hústóftarvöllur Grindavík
Hólmsvöllur Leirunni
Kálfatjarnavöllur Vatnsleysuströnd
Haukadalsvöllur í Haukadal
Með kveðju og ósk um góða helgi!
Ómar Örn Friðriksson,
framkvæmdarstjóri