Undirbúningur fyrir golfsumarið 2017 er á fullu skriði hjá Golfklúbbi Reykjavíkur og er liður í þeim undirbúningi hópaskráningarnar sem klúbburinn hefur boðið upp á síðan sumarið 2010. Þetta fyrirkomulag skráninga hefur mælst vel fyrir og verður framhald á því á komandi sumari.
Hér fyrir neðan má finna þær reglur sem gilda fyrir hópaskráningar 2017:
Stærð hópa, ekki færri en 8 og ekki fleiri en 20 manns í hverjum hóp.
Einungis verði félagsbundnir GR-ingar í hópum, þó verða gestakort og vallarkort gildandi til forbókunar.
Bókað verður einungis fjóra daga vikunnar; mánudag, þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag.
Hver hópur fær bókaðan tíma fjórum sinnum í mánuði þ.e.a.s. hver hópur fær bókaðan rástíma einu sinni í viku á einum af þessum fjórum völlum; Grafarholt, Korpa, Akranes og Grindavík.
Óskað er eftir og gengið er út frá því að hópar bóki sig ekki á Grafarholtsvöll og Korpúlfsstaðavöll utan forbókunar.
Bókun á sér stað frá kl.8:00 til 14:50, þ.e.a.s. síðasti rástími verður kl.14:50. Ef um vinavellina er að ræða þá er síðasti rástími 15:50.
Hópaskráningar byrja þegar báðir vellir GR hafa verið formlega opnaðir.
Við röðun verður reynt að verða við óskum hópa um tímasetningar, innan þess tímaramma sem greint er frá hér að ofan. Verði fimm hópar eða fleiri sem óska eftir sama rástíma verða forsvarsmenn þeirra boðaðir til fundar og dregið um tíma.
Umsóknir fyrir golfsumarið 2017 þurfa að berast fyrir 4. apríl á netfangið dora@grgolf.is Eftir þann tíma verður ekki tekið við skráningum.
Breytingar eru samkvæmt skráningareglum GR s.s. afbókanir. http://www.grgolf.is/frodleikur/reglubok/
Ábyrgðarmaður er tilnefndur fyrir hvern hóp og tryggir hann að reglur séu haldnar t.d. að rástímar verði fullnýttir, sjá reglubók GR. Einnig óskum við sérstaklega efir því að ábyrgðarmaður tilkynni þeim velli sem hópur er skráður á tímanlega ef forskráningatímar verða ekki nýttir.
Í umsókn um hópaskráningu skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram:
Árbyrgðamaður: Fullt nafn og netfang
Farsímanúmer hjá ábyrgðamanni:
Nöfn og kennitölur hjá öllum í hópnum:
Ósk um hvaða vikudag hópurinn vill spila:
Ósk um hvaða tíma dags er óskað eftir rástíma:
Kveðja,
Golfklúbbur Reykjavíkur